| Dagur 1 |
SHANGHAI |
| |
(Hádegisverður og kvöldverður/gist í Shanghai)
Farið er frá KEF klukkan 7:25 með skiptingu í Frankfurt. Komutími í Kína eftir 10 tíma flug frá Frankfurt er um það bil 8 um morguninn, daginn eftir.
Tekið er móti hópnum ásamt íslenska farastjóranum á Pudong flugvellinum í Shanghai og farið á hótelið. Eftir að fólk hefur komið sér fyrir er snæddur hádegisverður. Þaðan er farið að skoða Yuyuan Garden og Chenghuang Temple. Þar er að finna 400 ára gamlar byggingar frá tímum Ming og Qing ættarveldisins. Á þessum slóðum er að finna arfleið þess tíma eins og leikhús, víðáttu mikla sali, steinagarða og tjarnir. Eftir það er farið með hópinn á alkunna kínverska nuddstofu í fótanudd. Að lokum er snæddur kvöldverður og farið aftur á Hótel.
|
 |
| Dagur 2 |
SHANGHAI |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Shanghai)
Eftir morgunmat er farið í Orient Pearl sjónvarpsturninn í Shanghai. Farið er með lyftu upp í turninn þar sem einstakt útsýni er yfir alla borgina enda er turninn í 468 metra hæð sá hæsti í Asíu og 3 hæsti í heiminum. Þegar komið er aftur niður úr turninum er farið í Shanghai Wax Work vaxmyndasafnið sem er niðri í turninum. Eftir það er snæddur hádegisverður og að honum loknum er á Riverside Avenue (BinJiang) sem er eitt af nýrri svæðunum í Shanghai og er löng gata sem liggur upp við árbakkan og sýnir vel hina nýju hlið á ört vaxandi borgum í Kína. Þarna fer saman mikilfengleiki í hönnun og fegurð stórborgar og að því loknu er snæddur kvöldverður. Að kvöldverði loknum er ljósadýrðin að kvöldlagi í Shanghai skoðuð sérstaklega Nanjing Road. |
 |
| Dagur 3 |
HANGZHOU |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Hangzhou)
Eftir morgunverð er keyrt til Hangzhou sem er í 2 stunda fjarlægð frá Shanghai. Þegar þangað er komið er farið til West Lake Scenic Area og þar er farið í bátsferð á gömlum kínverskum vatnabátum. Mikil fegurð ber fyrir augum bæði vegna einstakra náttúru og annarra áhugaverðra svæða s.s. tjarnirnar þrjár sem spegla tunglið, Leifeng turninn sem er síðan 975 eftir krist, Su Dike og White Dike sem eru gönguleiðir um svæðið þær eru tengdar með hengibrúm og er svæðið baðað af blómum og öðrum náttúruperlum, auk þessa er Ruan Gong eyja sem er ein af 3 eyjum á svæðinu. Hádegisverður og kvöldverður verður snæddur á svæðinu, áður en farið er á hótelið, eða á hótelinu. |
 |
| Dagur 4 |
HANGZHOU |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Hangzhou)
Eftir morgunverð er farið að skoða áhugaverðustu staðina í Hangzhou. Yuewang helgistaðinn, Breeze ruffled Lotus í Quyuan garðinn sem er fullur af lótusblómum sem skarta fegurð sinni í rauðum, gullnum og hvítum lit í fjölbreyttum formum og útliti og að lokum eftir hádegis verð Dreaming of Tiger sem er einn af 3 vinsælustu stöðunum í Kína sem laðar að ferðamenn, þar er að finna lind með einu tærasta vatni veraldar sem á að hjálpa heilsu fólks ef það er drukkið, auk þess eru þar marrgir aðrir áhugaverðir staðir í kringlum lindina. Kvöldverður er snæddur áður en farið er á hótelið eða á hótelinu. |
 |
| Dagur 5 |
TONGLU |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Tonglu)
Eftir morgunverð er keyrt til Tonglu þar sem farið er í Da-Qi þjóðgarðinn sem er fjallgarður. Skoðað er Golden Bull lake, Guanshiyin-pointed sem er hof gyðju miskunnar, Dragon-pool fossinn, 12 Ziao laugina þar sem kínversku stjörnumerkin koma fyrir. Hádegisverður er snæddur og eftir hann er farið er með bát í gegnum skóginn og vatnsföllinn, uppspretturnar og hljóðin úr þessum undurfagra skógi upplifuð. Farið er upp í fjallgarðinn. Kvöldverður er snæddur áður en farið er á hótelið eða á hótelinu. |
 |
| Dagur 6 |
JIANDE |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Jiande)
Eftir morgunverð er farið til Tongtianhe cloud sem er hellir sem ár renna í gegnum. Þar er gengið inn og skoðað afar spennandi og óvenjulegt náttúrufyrirbæri. Hægt er að ganga 4,5 km inn í hellinn sem er 18.000 fm. að stærð. Eftir hádegisverð er keyrt til Jiande og Xin Anjiang vatnsvirkjunin heimsótt.
Kvöldverður er snæddur áður en farið er á hótelið eða á hótelinu. |
 |
| Dagur 7 |
QIANDAO LAKE |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Qiandao lake)
Eftir morgunverð er keyrt til Qiandao lake (vatn þúsund eyja á kínversku). Farið verður með bát og nokkrar af eyjunum heimsóttar svo sem Páfugla garðinn, Apa eyju, Steina garðinn og Fuglaeyjuna. Sagt er að það sé eins og að sigla á spegli því vatnið er svo tært og nánast drykkjarhæft. Hádegis- og kvöldverður er snæddur í bátnum, áður en farið er á hótelið, eða á hótelinu. |
 |
| Dagur 8 |
ZHOUZHUANG |
| |
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður/gist í Shanghai)
Eftir morgunverð er keyrt til Zhouzhuang sem er afar friðsæll og ævaforn bær með 900 hundruð ára sögu. Í gegnum bæinn liggja árfarvegir og er mikill fjöldi af örsmáum bogadregnum brúm sem tengja bæinn saman. Kínverjar ferðast á bátum eftir árfarveginum. Gengið verður í gegnum bæinn og er hádegisverður snæddur í Zhouzhuang þar á eftir er keyrt til Shanghai og kvöldverður snæddur. Að honum loknum er farið á kínverska loftfimleika sýningu. |
 |
| Dagur 9 |
SHANGHAI |
| |
(Morgunverður og hádegisverður)
Eftir morgunverð er farið á NanJing Road, sem hefur hlotið verðlaun fyrir að vera í fyrsta sæti af kínverskum götum. Þar er hægt að versla, fara á veitingahús, skemmtanir. Þar eru einnig áhugaverðir staðir til að skoða. Þar ótrúlegt úrval af alls kyns varningi og hefur hver búð sín sérkenni. Flogið er frá Shanghai rétt fyrir kl. 24 um kvöldið. Komið er til Frankfurt 6 morguninn eftir á 10 degi eftir 12 tíma flug þar sem skipt er yfir í flugvél Icelandair kl. 14:00 og flogið heim. |
 |
| |
|
|
| |
Allur hótelkostnaður, aðgangseyrir, rútuferðir, máltíðir sem nefndar eru í texta ásamt flugi og íslenskum og kínverskum leiðsögumanni er innifalið í þessari pakkaferð og auk þess eru drykkjarflöskur í rútum . Verð pr. mann er 259. 000 og ef bókað er fyrir 7. september er veittur 10.000. kr. afsláttur
Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar geta haft samband í eftirfarandi síma:
Skrifstofa: 555-6999
Vignir 8993629
Guðný 8631116
Anna 8620598
Eða komið á skrifstofu okkar að Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði í veitingahúsinu Dong Huang. |
|